Björt framtíð
„Björt framtíð, basic“
Óttarr Proppé
Óttarr er fæddur 7.nóvember 1968 í Reykjavík. Hann er með lokapróf frá Pennridge High School í Perkasie í Bandaríkjunum frá árinu 1986.
Hann hefur starfað við bóksölu hjá Almenna bókafélaginu, Eymundsson og Máli og menningu, sem tónlistarmaður og lagahöfundur með hljómsveitunum HAM, Dr. Spock, Rass auk annarra, sem leikari, sem handritshöfundur, sem hljóðmaður og sem framleiðandi við kvikmynda- og heimildarmyndagerð.
Hann hefur setið í stjórn STEF, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar frá árinu 2008. Hann var í stjórn Besta flokksins í Reykjavík, í borgarstjórn Reykjavíkur 2010-13, í borgarráði 2010-13, í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2010-13. Hann var fulltrúi á sveitarstjórnarvettvangi EFTA árin 2010-13.
Óttarr hefur verið í stjórn Bjartrar framtíðar frá stofnun flokksins árið 2012.
Hann er 6.varaforseti Alþingis og situr í utanríkismálanefnd.
