top of page

Ákvarðanir

Í Bjartri framtíð eru ákvarðanir teknar með samræðu. Meðlimir flokksins eru sammála um ákveðin grunngildi, þeir eru víðsýnir, umburðarlyndir og frjálslyndir.

Allar tiltækar aðferðir hafa verið reyndar til að standa fyrir málefnastarfi innan flokksins. Komið hefur í ljós að fólk nennir ekkert endilega að mæta á fundi, hefur margt við tímann sinn að gera og þá sérstaklega þegar ekki eru kosningar. Þær leiðir flokksins sem virka eru til dæmis Facebook, þar sem stjórnin er með lokaðan hóp. Þar eru mjög virkir þræðir, þingmenn setja inn spurningar um mál sem verið er að ræða á þingi, fá athugasemdir og úr verður mikil umræða.

Í upphafi var starfræktur málefnavefur, heimasíðan.is, það gekk vel í einhvern tíma en datt niður því það er ekki inni á radarnum hjá fólki. Nú hafa verið stofnaðir málefnahópar um hitt og þetta og á að láta reyna á það hvort fólk vilji hittast.

 

 

© 2023 by My site name. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic
  • RSS Classic
bottom of page