Björt framtíð
„Björt framtíð, basic“
Alþingiskosningar
Ári fyrir Alþingiskosningar velur stjórn Bjartrar framtíðar fjóra einstaklinga sem ekki sækjast eftir sætum ofarlega á lista. Þeir, ásamt formönnum Bjartrar framtíðar, mynda nefnd sem kallast Nefndin. Nefndin gerir tillögur að framboðslistum til stjórnar í hverju kjördæmi fyrir sig a.m.k. þremur mánuðum fyrir kosningar. Sé listi ekki samþykktur í kjördæmi ber nefndinni að breyta honum og leggja fram að nýju. Sé sá listi ekki heldur samþykktur skal endurtaka ferlið. Síðasta úrræðið er að stjórnin kjósi um efstu sex sætin; fyrst í fyrsta sæti, svo í annað sæti og koll af kolli. Fái enginn frambjóðandi yfir 50% í sæti skal kjósa aftur milli tveggja atkvæðahæstu frambjóðanda.
Nefndin auglýsir eftir áhugasömum og tekur viðtöl við þá. Í samráði við frambjóðendur gerir hún tillögu að framboðslistum í öllum kjördæmum. Þetta er gert til þess að komast undan því að það myndist átakakúltúr í Bjartri framtíð.
Fyrir Alþingiskosningar 2013 sátu Ágústa Andersen, Gestur Guðjónsson, Guðmundur Steingrímsson, Harpa Elísa Þórsdóttir, Heiða Kristín Helgadóttir og Sólveig Thorlacius í nefndinni.
Störfum nefndarinnar lýkur þegar landskjörstjórn hefur samþykkt alla lista.