top of page

Guðmundur Steingrímsson

Guðmundur er fæddur 28.október 1972 í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík árið 1992 og úr Háskóla Íslands árið 1995 með BA-próf í íslensku og heimspeki. Hann stundaði framhaldsnám í heimspeki við kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu árin 1996-1997. Hann lauk meistaraprófi í heimspeki frá Uppsalaháskóla í Svíþjóð árið 1998 og frá Oxfordháskóla í Bretlandi árið 2001. Hann lagði stund á framhaldsnám í hagfræði við Háskóla Íslands.

Hann er starfandi tónlistarmaður í hljómsveitinni Ske, sem áður hét Skárren ekkert. Hann hefur starfað sem blaðamaður á Tímanum og DV, sem dagskrárgerðarmaður á Ríkisútvarpinu, sem starfsmaður í almannatengslum á auglýsingastofunni ABX, sem blaðamaður og pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu, sem dagskrárgerðarmaður á Skjá 1 og sjónvarpsstöðinni Sirkus, sem aðstoðarmaður borgarstjóra, sem sjálfstæður atvinnurekandi á sviði textagerðar og hugmyndasmíði fyrir auglýsingar, almannatengsl og ráðgjöf á ýmsum sviðum.

Guðmundur var formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands árin 1995-1996, fulltrúi stúdenta í háskólaráði árin 1994-1996. Hann sat í stjórn Iceland Naturally í Norður-Ameríku árin 2007-2009, í stjórn Landverndar 2008-2009 og í nefnd um eflingu græna hagkerfisins 2010-2013. Hann var formaður verkefnis um notendastýrða persónulega þjónustu frá 2011. Guðmundur hefur gegnt embætti formanns Bjartrar framtíðar frá stofnun, síðan 2012.

Guðmundur situr í efnahags- og viðskiptanefnd og Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. 

Áður hefur hann setið í félags- og tryggingamálanefnd, samgöngunefnd, velferðarnefnd og efnahags- og viðskiptanefnd.

© 2023 by My site name. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic
  • RSS Classic
bottom of page