top of page

Páll Valur Björnsson

Páll er fæddur 9.júlí 1962 í Reykjavík. Hann útskrifaðist af háskólabrú Keilis í Ásbrú árið 2008. Hann lauk B.Ed.-grunnskólakennaraprófi við menntavísindasviði Háskóla Íslands árið 2011.

Hann hefur starfað hjá Fiskmarkaði Suðurnesja, hjá Sønderborg kommune og hjá Danmarin Fiskehermetik-, fiskefars- og fiskefiletfabrik í Danmörku.

Hann hefur unnið við fiskvinnslustörf, sem öryggisvörður hjá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli, sem grunnskólakennari við Njarðvíkurskóla og sem kennari við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík. 

Hann sat í nefnd um aukna menntun á Suðurnesjum á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins árin 2010-2012, í bæjarstjórn Grindavíkur fyrir Samfylkingarfélag Grindavíkurlistans árin 2010-2012 og var formaður Samfylkingarfélags Grindavíkurlistans árin 2011-2012. Hann sat í stjórn Kölku, sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja árið 2012 og hefur setið í fræðslunefnd Grindavíkurbæjar frá árinu 2011.

Páll situr í kjörbréfanefnd  og allsherjar- og menntamálanefnd.

© 2023 by My site name. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic
  • RSS Classic
bottom of page