top of page

Matvælaframleiðsla

Björt framtíð vill auka fjölbreytni í matvælaframleiðslu. Flokkurinn vill gera það með því að styrkja bændur að gera það hagkvæmasta á landi sínu. .

 

Verja mannréttindi

Björt framtíð vill útrýma launamisrétti kynjanna. Breyta lögum um mannanöfn og innleiða Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

 

Auka framleiðni í þjóðfélaginu

Björt framtíð vill gera það að meginverkefni að auka framleiðni í þjóðfélaginu. Framleiðni á Íslandi er mun minni en hjá nágrannaþjóðum okkar. Íslendingar vinna langa vinnudaga en afköstin eru ekki í samræmi við það. Björt framtíð vill að flestir vinni við það sem þeir gera best með góðum afköstum.

 

Heilbrigðiskerfið

Bjartri framtíð finnst það nauðsynlegt að efla alhliða heilsugæslur um allt landið, fjölga hjúkrunarrýmum og byggja betri Landspítala.

 

Skólakerfið

Björt framtíð vill auka valkosti og sveigjanleika í skólakerfinu og koma í veg fyrir brotföll. Flokknum finnst vanta fleiri möguleika varðandi lengd námsins og fleiri leiðir sem henta hverjum og einum.

 

Auðlindir

Björt framtíð vilja fá meira fé fyrir orkuauðlindir íslands án þess að skapa óhóflega þörf á frekari virkjunum sem skaða náttúruna

Flokkurinn styður ekki frekari uppbyggingu álvera og telja það ekki skynsamlegt. Björt framtíð vill gera eigendastefnu fyrir Landsvirkjun þar sem stefna fyrirtækisins er skilgreind með tilliti til arðsemi, samfélagslegrar ábyrgðar og umhverfisverndar.

 

Verum umhverfisvæn

Björt framtíð er umhverfisvænn flokkur og segja þau að Ísland sé mesta sóunarsamfélag í heimi samkvæmt nýlegum rannsóknum. Flokkurinn vill gera fólki auðveldara að vera umhverfisvæn. Til þess að þetta geti átt sér stað segja þau að hér þurfi gott samstarf milli einkageirans, sveitarfélaga og ríkis þar sem sjálfbær nýting er ávallt markmiðið.

 

ESB

Björt framtíð vill ná góðum samningi við ESB sem þjóðin getur samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. En fyrst þarf að upplýsa þjóðina um ESB og allt sem því fylgir. Þannig getur þjóðin komist að niðurstöðu.

Ef ESB væri samþykkt þá myndi opnast leið til gjaldmiðilssamstarfs við Evrópska seðlabankann sem getur mögulega strax aukið stöðugleika. Evran gæti svo verið tekin upp þegar skilyði hafa skapast til þess.

Flokkurinn telur að þetta sé besta leiðin í átt að efnahagslegum stöðugleika.

 

Útflutningur

Björt framtíð leggur mikla áherslu á að auka útflutning og segja að það eyki stöðugleika. Atvinnugreinar eins og matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta gegna miklu hlutverki. Einnig greinar eins og kvikmyndagerð, hönnun, tölvuleikjaframleiðsla, framleiðsla á orkusparandi og umhverfisvænni tækni, líftækni og margt fleira.

 

Skapa opið markaðs- og samkeppnisumhverfi

Björt framtíð vill skapa opið markaðs- og samkeppnisumhverfi á Íslandi. Flokkurinn vill semja um gjalddaga erlendra skulda og segja að það minnki þrýstinginn á krónunni. Auka þarf trúverðugleika hagkerfisins, fjölga fjárfestingarkostum og gera plan um stöðugleika svo innlendar og erlendar krónueignir leiti síður úr landi.

 

Skattkerfið og almannatryggingakerfið

Björt framtíð vill gera skattkerfið og almannatryggingakerfið einfaldara og réttlátara. Flokknum finnst tekjutengingar í bótakerfinu og óskiljanleg bréf frá skattinum eitthvað sem þurfi að laga. Björt framtíð vill setja alla þjónustu hins opinbera á einn stað á netinu til þess að létta fyrir almenning. Flokkurinn vill að fólk geti nálgast það sem það vantar á sem einfaldastan hátt.

 

Umbætur í stjórnsýslu

Björt framtíð vill gerum umbætur á stjórnsýslunni. Flokknum finnst að stjórnarráðið þurfi að starfa meira sem ein heild.  Starfsmenn rðu﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽﷽menning.ngakerfið einfaldara, ráðuneyta eigi að geta fært sig meira á milli ráðuneyta.

 

Lýðræðislegar ákvarðanir

Björt framtíð vill leggja sig fram að virða lýðræðislegar ákvarðanir, fylgja á eftir stefnumótun og leiða mál til lykta. Flokkurinn vill nýta beint lýðræði og þátttöku almennings betur.

 

Ný stjórnarskrá

Björt framtíð vill setja þjóðinni nýja stjórnarskrá á grunni tillaga Stjórnlagaráðs. Þeim finnst að lögskýringargögn sem fylgja með stjórnarskránni eigi að vera skýr og að þjóðin þurfi tíma til þess að kynna sér endanlegt plagg áður en það verður að stjórnarskrá. Þau vilja vanda sig og eyða þeim tíma í þetta sem nauðsynlegur er (en þó ekki of miklum).

 

Sjávarútvegur

Björt framtíð vill skapa varanlegan sátt um sjávarútveg á grunni fjögurra stoða: 1) Að arður renni til þjóðarinnar 2) að nýting fiskimiðanna sé sjálfbær 3) að greinin njóti góðra skilyrða til að skila hagnaði og 4) að nýir aðilar geti haslað sér völl í sjávarútvegi.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

© 2023 by My site name. Proudly created with Wix.com

  • Facebook Classic
  • Twitter Classic
  • Google Classic
  • RSS Classic
bottom of page