top of page
Björt framtíð
„Björt framtíð, basic“
Róbert Marshall
Róbert er fæddur 31.maí árið 1971 í Reykjavík. Hann útskrifaðist úr Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 1993 og las lögfræði árin 1994-1995 og stjórnmálafræði 1995-1997 í Háskóla Íslands.
Hann hefur starfað við fiskvinnslu, netagerð og sjómennsku, sem blaðamaður á Vikublaðinu, Mannlífi og Degi-Tímanum, sem fréttamaður á Stöð 2 og sem forstöðumaður fréttasviðs 365 miðla.
Hann var aðstoðarmaður samgönguráðherra árin 2007-2009.
Róbert var formaður Verðandi, landssamtaka ungra alþýðubandalagsmanna árin 1995-1997, var í stjórn Grósku, samtaka félagshyggjufólks um sameiningu jafnaðarmanna árin1997-1998.
Hann var formaður Blaðamannafélags Íslands árin 2003-2005 og hefur setið í Þingvallanefnd frá árinu 2013.
Róbert situr í umhverfis- og samgöngunefnd og Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Jafnframt er hann formaður þingflokks Bjartrar framtíðar.
Áður hefur hann setið í allsherjarnefnd, samgöngunefnd, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, umhverfisnefnd, þingskapanefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.

bottom of page