top of page
Björt framtíð
„Björt framtíð, basic“
Björt Ólafsdóttir
Björt er fædd 2.mars 1983 á Torfastöðum. Hún útskrifaðist úr Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2003 og úr Háskóla Íslands með BA-próf í sálfræði og kynjafræði árið 2007. Hún kláraði MSc.-próf í mannauðsstjórnun í Háskólanum í Lundi árið 2008.
Hún hefur starfað sem meðferðarfulltrúi við meðferðarheimilið Torfastaði, sem stuðningsfulltrúi og verkefnastjóri á geðdeildum Landspítala, við viðskiptaþróun og mannauðsmál á ráðgjafar- og þjónustumiðstöðinni Vinun og sem mannauðs- og stjórnunarráðgjafi hjá Capacent.
Björt var formaður Geðhjálpar árin 2011-2013.
Hún situr í atvinnuveganefnd og velferðarnefnd.

bottom of page